8 Feb 2006

Bloggið er ekki dautt!!!

Takk Þorbjörg fyrir að sparka aðeins í rassinn á mér og segja mér að koma mér að verki hvernig er það með áramótaheitin sem maður er svo duglegur að setja á gamlárskvöldi og síðan er smá frestur þar til eftir próf og síðan hva' gerist bara ekki neitt!!! en nú er víst breyting á þökk sé góðum vinum og nú er bloggið endurlífgað!! og ég fór út að hlaupa í dag og hef ekki borðað nammi í viku jubbiii... kannski maður haldi einhverjum heitunum..
Hér í kóngsins köben er allt auðvitað á fullu í hótunum og íslamfobiu osv.. en það fyndna er nú að þetta er nú mest í fréttunum, hér eru allir voðalega rólegir og fylgjast með fréttum en múslimar í Danmörku og Danir (og íslendingar ) hér í köben lifa nú í sátt og samlyndi en það eru jú alltaf smáhópar sem vilja krydda tilveruna og æsa lýðinn upp..... þetta mál er búið að vera í gangi síðan í september þegar myndirnar voru birtar sem var nú svona meira til umræðu hvort að við eigum að líta á muhammed = hryðjuverk enda erfitt annað þegar við sjáum í fréttunum frá írak menn hrópa allah er stór um leið og þeir skera evrópskan fréttamann á háls en þó held ég að við almennt fólk með rökstudda hugsun vitum betur..
en jyllandsposten setti þetta í blöðin sem jú í þessu landi ætti ekki að vera neitt að jú ég er nú sammála að þetta gæti talist fordómar á ákveðinn hóp í landinu en það er jú frelsi í landinu til að gefa út hvað sem er en vandamálið er jú þessir sem við köllum ,,rejseholdet" sem fór á ráðstefnu fyrir ímama í arabísku löndunum og sýndu þessar myndir og vöktu þessa stemmingu upp og það var eins og það væri dropinn sem fyllti skálini í þessum löndum þarsem allt er svo ustabilt og þarf lítið til uppþota. þetta er bara mál sem aldrei hefði átt að ganga svo langt og hefði bara átt að haldast innan Danmerkur en því miður því miður er þetta komið svo langt spurningin er bara hvað er næst, það er alla vega ekki gaman að vera ,,dani" í dag þjóðfélag sem hefur reynar svo multietnisk samfélag þarsem flestir lifa í sátt og samlyndi gleymum því ekki þegar við sjáum myndirnar í sjónvarpinu...
PEACE

No comments: