Snjókorn falla á allt og alla... ég vildi óska að ég vissi hvernig maður setur myndir inn á bloggið þá myndi ég nú setja mynd af fallegri kóngsins Kaupmannahöfn núna. Ég var að koma heim úr skólanum með metro og labbaði svo heim frá Flintholm station, fallegt veður og yndislegt en hjálpi mér hvenær kemur nú vorið og hitinn og sandalarnir...
Það sem maður er kannski mest í vandræðum með hér í köben er jú hjólið!!! danir hjóla auðvitað i öllu veðri og greyið Ilija er á vakt í skadestuen þar sem allir koma inn með hitt og þetta eftir að hafa dottið á hjóli..
Annars allt gott héðan frá Köben, Muhammed málið að róast og allt að komast á réttan kjöl. Auðvitað alltaf eitthvað í fréttunum en vonandi leysist þetta nú.
Gleði, friður og snjór
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Gæti ekki verið einfaldara að setja inn myndir. Kíktu bara - http://help.blogger.com/bin/answer.py?answer=324
Post a Comment