19 Jun 2006

3 dagar í sumarfrí!!!

Er komin heim úr réttarlæknisfræðiprófinu mínu og núna eitt próf eftir á fimmtudaginn og svo SUMAR!!!!! ég hlakka svo til að sitja bara og njóta góða veðursins og borða ís í sólinni án alls stress. Það er búið að vera yndislegt veður hér síðust viku og nú er bara vonandi að það haldist..
Það er reyndar svona svolítið skrítin tilfinning að fara í próf og koma út og finnast maður vera búin, drekka eina kók á kaffihúsi með vinkonunum og svo heim aftur.. það er eitthvað sem heldur mikið aftur af manni þegar maður á að setjast aftur við skrifborðið.. hausinn segir bara NEI!!! ég vil ekki meir og nýtt efni huff hvernig gerði maður þetta í grunnskóla og menntó? Við hér erum orðin svo vön risaprófi í lokin og svo búið þetta er kannski bara ekkert betra.
En í dag er líka kvennadagurinn til hamingju með það allar konur! og njótið dagsins kaupið ykkur nýja skó hehe.. en ég hef það nú ekki svo slæmt er að fara að hitta Elvu Dögg í kaffi núna eins og við orðuðum það þegar búðirnar loka, þá fær hún jú nógan tíma í búðunum og ég eyði engum pening alveg sniðugt..
Allar konur ( og menn ) njótið dagsins

1 comment:

Anonymous said...

Gott að sjá að þú ert byrjuð að blogga aftur :)
Elskan mín gangi þér mjög vel í síðasta prófinu á morgun og haltu upp á próflokin með stæl, t.d. með því að panta einn miða til Barcelona...;)
Hilsen til Ilija og kossar og knús til þín.
Halldóra