Það er ekki auðvel tað vera íslendingur núna, búin að naga allar neglurnar í botn og með tár í augunum eftir að horfa á Dani vinna okkur í handbolta.. af hverju endilega Danir? Minnir mig á fyrsta árið mitt hér í Kaupmannahöfn þegar ég fór með Halldóru frænku, Sverri og fleirum að sjá Ísland-Danmörk spila í fótbolta.. endaði 6-1 fyrir dönum puff.. það voru erfiðir dagar í skólanum eftir það en verður að segjast að íslendingar börðust vel í kvöld og ég var stolt af þeim jafnvel þó að síðustu sekundurnar voru ekki svo góðar.. huff er alveg búin á taugum... en tölum ekki meira um það við vitum innst inni að íslendingar eru miklu betri en danir í handbolta!!
Annað á dagskrá hér að núna er ég byrjuð á 11. önn, búin með fyrsta daginn í skólanum eftir langt frí og svei mér það var bara gaman.
Svo fékk ég nýtt hjól í dag, ég var svo óheppin að því gamla var stolið frá mér á meðan ég var í afríku en nýja er mjög fínt, sendi mynd af því á morgun.
Vildi nú bara bjóða góða nótt á íslensku... góða nótt og áfram Ísland!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment