30 Nov 2005

Jólin koma, jólin koma

Fyrsti i aðventu liðin og jólin nálgast með ógnarhraða, þetta er sá tími ársins sem lýsir upp vetrarmyrkrið þarsem allir kveikja á kerti eða tveim og hengja ljós í glugga, allir eru eitthvað svo glaðir og fullir tilhlökkunar því nú koma jólin (já lognið á undan storminum þar sem allir verða svo stressaðir yfir öllu sem þeir eiga eftir að gera fyrir jól). Á morgun er svo fyrsti desember og jóladagatöl verða opnuð í stórum stíl snemma í fyrramálið.
Sjálf hef ég sett upp jólatréð sem amma mín gerði handa mér í gluggann og það lýsir upp alla stofuna sem skemmtilegum litum og flugmiðinn ,,heim" er komin í hús og ég hlakka bara svo til. En upps það er víst svo mikið sem maður þarf að gera fyrir jólin, ég er til dæmis ekki byrjuð á jólagjöfunum svo þyrfti maður nú það eina og annað fyrir jól en ég held ég ákveði að fresta stressinu aðeins og njóta lognsins meðan það varir.

4 comments:

Anonymous said...

Oh, ég er sko að spá í að hafa þennan jólaundirbúning eins stresslausan og ég mögulega get. Skjótast í bæinn af og til og pikka upp eina og eina gjöf með góðum fyrirvara, kaupa jólatréð snemma, stressa mig ekkert á því ef ég ekki næ að þrífa eldhúsinnréttinguna og lakka gluggana.....Ég er m.a.s., næstum mér óafvitandi, búin að kaupa 5 jólagjafir!

Spurning hvort ég lifi í voninni enn eitt árið að ná að klára öll heimaföndruðu jólakortin en ekki redda restinni með búðakortum....eða hvort málið er bara hjá bissí konu að kaupa þau öll sem eitt...?!?

Hlakka til að sjá þig, skvísa.

Anonymous said...

Hafandi lesið fyrra kommentið mitt finnst mér einhvern veginn eins og ég hafi hent fram svipaðri staðhæfingu áður.......

Batnandi konu er best að lifa.

Anonymous said...

hehe nákvæmlega :D
en krisbý, ég man sérstaklega eftir jólakortinu þínu í fyrra, því það var einstaklega fallegt og heimatilbúið :D
mmm.. reyndu bara að njóta aðventunnar fjóla mín við fallega ljósið hennar ömmu þinnar :D

Þorbjörg said...

Hvernig væri nú að fara að blogga eitthvað sæta mín? Bíð spennt á hverjum degi eftir nýju bloggi en ekkert gerist ;)