Allt of langt síðan-ég hef bloggað og verður það örugglega eitt af áramótaheitunum að vera duglegri að blogga (ásamt 100 öðrum vera duglegri........)
Hér sit ég sveitt og sæl eftir að vera búin að pakka nánast öllum jólagjöfunum inn og með smákökurnar sem ég fékk með póstinum frá henni mömmu minni á borðinu. Já jólastressið náði víst aðeins í mig á lokasprettinum og núna fer að líða að því að ég fari á kastrup með alla yfirvigtina mína og brosi mínu breiðasta til þess að þurfa ekki að borga já þá eru jólin komin.
Annars óskaði bróðir minn mér til hamingju með daginn í dag já sagði hann 7 ár síðan þú útskrifaðist úr MH 7 ÁR!!!!!!!! Vá hvert fór allur þessi tími þetta er jú alveg heil kynslóð huff..og ég bara ekkert eldri kannski bara nokkrum kílóum þyngri en alveg óbreytt eða hvað???
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment