27 Dec 2005

Blogleikur

Jæja maður verður nátturulega að vera með...........
Skemmtilegur bloggleikur sem gengur út á að þú lesandi verður að kommenta á þessa færslu undir nafni og ég geri eftirfarandi á kommentasíðunni í staðinn:
1) Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2) Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3) Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4) Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína um þig.
5) Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á.
6) Og ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér um þig.
7) Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta inná bloggið þitt, ef þú átt eitthvað blogg!

7 comments:

Elva Dögg said...

gaman að þú ert komin í bloggstuð aftur ;)

Anonymous said...

Ég :D

Anonymous said...

híhí gaman gaman

Fjóla said...

Elva:
1. Traust vinkona og kona með stíl
2. don´t speak með Gwen Stefani útaf myndbandinu og svei mér þá að gömlu lögin Michael Jackson kemur líka upp í kollinn á mér.
3. Frísk og safarík jarðaber sem eru svo sæt að maður getur ekki annað en brosað þegar maður bítur í þau.
4. hmm.. allra fyrsta minningin þær eru svo margar frá MH, sérstaklega þótti mér nú vænt um eitt sumarið þegar þið komuð allar í heimsókn til mín hingað norður og við lágum allar í grasinu upp í sveit hér við Blönduós
5. Hvíta, fallega og fágaða kisu
6. Hvar færðu alla þessa gleði og orku sem þú ert svo dugleg að gefa frá þér? og værirðu kannski til í að gefa mér upp lotto tölurnar einn laugardaginn hehe..

Fjóla said...

Þorbjörg:
1. þú ert ólýsanlega góð vinkona
2. Like a virgin með madonnu.
3.Gott ilmandi kaffi með súkkulaðihúðuðum kaffibaunum.
4. Stærðfræðitíma á fyrsta degi í MH, já það er erfitt að komast hjá að taka eftir þér.
5. Kisu sem er með einstaklega falleg augu og er algjörlega ófeimin, kemur, ,mjálmar og strýkur sér upp að þér.
6. Kemurðu ekki bara í framhaldsnám til Köben?

Fjóla said...

Dóra:
1. Látúnsbarkinn í Hveragerði
2. myndin súkkulaði og auðvitað minna madonnulögin á ykkur stelpurnar (ég sat jú í áhorfendasalnum)
3. Súkkulaði með jarðaberjafyllingu.
4. Það er erfitt að muna fyrstu minninguna en ég man að þú varst stelpan með stóra brosið sem spilaði í lúðrasveit með Elvu.. seinna reyndist þú yndisleg vinkona
5. lítill söngfugl á grein úti í skógi.
6. Fær maður allt grænmeti og blóm ferskari í Hveragerði? :)

Anonymous said...

Ég?