31 Dec 2005

Nú árið er liðið...........

Nú árið er liðið í aldanna skaut..........
já og þetta hefur verið viðburðaríkt ár, það sem stendur upp úr er auðvitað námið þarsem vel hefur gengið og ég kláraði 4.ár í vor, fannst ég ansi langt komin þá og núna hálfnuð með 5.ár.
Svo eru auðvitað öll ferðalögin til Íslands fyrst og fremst, Indlands um páskana, Cambridge í heim Harry Potter og bílferðin til Króatíu. Þetta hefur verið svo gaman allt saman og vonandi verða ferðalögin á næsta ári jafn vel heppnuð núna er jú plönuð hjálparstarfsferð til afríku í september og hlakka ég mikið til að kynnast þeim heimi. Auðvitað stendur það líka upp úr hversu vinir og fjölskylda hefur verið dugleg að heimsækja mig til Köben og nýt ég þess og vona að það verði ekki breyting á.
Nú svo fluttum ég og Ilija saman í litlu íbúðina okkar í fuglahverfinu og það er yndislegt að vera bara saman alla daga í okkar íbúð.
Já árið er liðið og aldrei það kemur til baka og nýtt ár tekur við á morgun og ný markmið. Áramótaheitin strengd... já áramótaheitin eru mörg í huga mér núna enda áramótin góður tími til að setjast niður og skoða sín mál en maður verðu að passa að ætla sér ekki um of og vera líka bara sáttur við hver maður er og hvernig maður er en batnandi manni er best að lifa og því er maður fljótur að finna eitthvað fram sem maður vill gera öðruvísi og betra, tíminn leiðir í ljós hvernig það gengur að halda í þessi heiti þegar líað tekur á árið en eitt er víst að ég ætla að vera duglegri við að blogga og vera bara almennt góð við allt og alla.

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!

No comments: