7 Jan 2008

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár allir saman..
já árið 2007 var nú bara ansi gott ár. Ég byrjaði árið á því að skreppa til Parísar með honum Ilija mínum og byrjaði þar á eftir á 11.önn í læknisfræðinni sem gekk bara vel. Fór síðan heim til Íslands sem var auðvitað alveg yndislegt. Sérstaklega séð í ljósi þess að veðrið hér í Danmörku var mjög leiðinlegt í allt sumar á meðan það var kannski of heitt á Íslandi.
Fékk frábæra sumarvinnu á sjúkrahúsinu Vogi þarsem ég eyddi mestum tíma sumarsins og lærði heilan helling. En að sumri loknu hélt leiðin aftur í nordvestur hluta Kaupmannahafnar og við tók síðasta önnin.. Þessi önn er búin að vera ansi strembin, mjög mikið að gera en rosalega skemmtilegt líka. Eftir myrkur og rigningu vetrarins fórum við lesfélagarnir til Tenerife í viku á einstöku afbókunartilboði. Nú eru tvö stór próf búin og ein lokaritgerð og tvö próf eftir.. Síðasta lotan hafin. Ég og Ililja erum nú nýkomin aftur frá alveg yndislegu nýársfríi á Íslandi í faðmi fjölskyldunnar þarsem var spilað Matador og nintendo Wii fram á nótt á hverju kvöldi. Við hittum líka fullt af frábæru fólki (þó kannski alla sem ég hefði viljað ná en svona er þetta nú)

Árið 2008 ber einnig margt í skauti sér. Fyrir mér kannski fyrst og fremst lok háskólanámsins hjá mér. 6 löng og erfið ár að baki ( ja 6 og hálft þar sem ég fór jú til Tanzaníu ) og ef allt gengur að óskum byrja ég sem læknir á Aabenraa spítala á suðurjótlandi 1.febrúar. Einnig fermist litla systir mín þann 6. apríl og hlakka ég mikið til þessa dags. Hún Erla mín er svei mér að verða fullorðin bráðum. Sigvaldi fær jú líka bílpróf í ár. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur.

En nú er ég víst komin aftur á bloggið.. hélt að enginn læsi þetta bull í mér en eftir ábendingar vina og ættingja ætla ég að byrja aftur á þessu og læt áramótaskaupið ekki draga úr mér kjark :)

2 comments:

Anonymous said...

Gleðilegt nýtt ár kæra frænka!
og takk kærlega fyrir síðast,gaman að sjá að þú ert farin að blogga
aftur,þá getur maður hætt að lesa águstfærsluna,gangi þér vel í lokatörninni
kveðja Sigrún frænka.

Anonymous said...

Hæjj geðveikt gaman að þú ert byrjuð aftur að blogga . Sakna þín geðveikt mikið :( er búin að vera í geðveikt mörgum prófum gekk held ég vel :D Sé þig eftir 2 vikur bæjj elskaa þig