17 Jan 2008

Síðasti skóladagurinn á morgun

Alveg er þetta skrítið, síðasti skóladagurinn minn á morgun.. og ég hef verið í skóla í svo mörg ár. Það er nú samt eitthvað svo stutt síðan ég hjólaði frá gammel kongevej þar sem ég bjó með Halldóru frænku til Panum instituttet (læknaskólinn í Kaupmannahafnarháskólanum ) og labbaði mín fyrstu skref hér inn oh my god og skildi ekkert það sem þeir sögðu.. og nú sit ég sveitt og les fyrir lokaprófið sex og hálfu ári seinna. Undarlegt... Farin að fá fiðring í magann yfir því að fara að flytja til Jótlands en maður tekur þessu bara sem ævintýri (sendi myndir þegar ég fer þangað) en hlakka til að fara á handboltaleik í Ribe :) (Tryggvi frændi er jú aðalmaðurinn í því liði :)) og versla í öllum stórbúðunum í Sonderborg. Mest hlakka ég þó til þegar einhver kemur í heimsókn til mín og ég fer til Billund og ná í gestina kannski með viðkomu í Legolandi hver veit.. en núna lesi lesi les bara nokkrir dagar í viðbót

4 comments:

Sylvía og Árni said...

Hæ, þú ert þá orðin læknir! Ætlaði bara að segja til hamingju;*

Anonymous said...

Til hamingju med utskriftina, var hun ekki annars um sidustu helgi?
Tu getur ta titlad tig Dr.Fjola her med ;)

Nu er pressa sad halda afram ad blogga!

Anonymous said...

Tetta atti nu ekki ad koma anonymous...

kv. Sigfrid

Anonymous said...

á ekki að fara blogga aftur sæta ? vonandi helduru áfram að blogga xD
erla systir