20 Feb 2008

Fjólan á nýjum stað, nýr titill allt nýtt

Svo er ég búin með langa stranga læknanámið sem kostaði svita og tár og líka mikla ánægju og gleði. Þegar ég lít aftur er þessi tími í Kaupmannahafnarháskólanum dýrmætur og ég á örugglega eftir að sakna háskólalífsins, bæði frídögunum sem koma óvænt (svona eftir því hvernig maður vaknar) og líka löngu lestímabilunum þarsem er lesið frá morgni til kvölds, setið á bókasafninu og drukkið kaffi með vinunum oft ekki neitt sérstaklega ferskur.
En núna er Fjólan orðin læknir já alvöru læknir. Mér finnst ennþá pínu fyndið að kynna mig sem læknir á spítalanum. En já ástæðan fyrir því að ég hef ekki bloggað fyrr er jú að ég byrjaði að vinna hér á suðurjótlandi, nánar tiltekið Aabenraa daginn eftir læknaútskriftina.

Eg átti reyndar yndislega daga með fjölskyldunni sem komu eingöngu vegna útskriftarinnar og gerði það afhöfninni og allt bara miklu hátíðlegra. Þau komu líka töskur fullar af fallegum gjöfum sendum að heiman og vil ég nota tækifærið og segja takk við ömmu og móðursystur mínar fyrir fallega hugsun og dýrmætar gjafir. Þið eruð æði.

Núna er ég svo byrjuð að vinna og það gengur nátturulega upp og niður þó mest upp.. en ef þið hafið séð fyrstu þættina af scrubs eða grey's anatomy þá vitið þið hvernig ca. mér líður haha..

en i'll keep you posted.
knus fra suðurjótlandi jebb Fjóla bara orðin dreifbýlislæknir (þó á flottustu bráðamóttökunni í landinu)

2 comments:

Anonymous said...

Hæ elsku Fjóla mín....
Innilega til hamingju með útskriftina..ég veit að þú ert og verður frábær læknir, ég vildi bara að þú værir hér nær okkur gamla frændfólkinu sem komið er á viðgerðaraldurinn...haha..en það verður vonandi síðar...hafðu það sem allra best gullan mín
kv
Guðný frænka

Fjóla said...

tad er alltaf hægt ad koma í vidgerd hér til Danmerkur:)