21 Feb 2008

Moijn

Hérna á suðurjótlandi segir fólk ekki Hej og hej hej eins og annars staðar í Danmörku (jú ég er enn í Danmörku, bara mjög nálægt Þýskalandi.. super geil) nei hér er fólk búið að finna sitt eigið mál.. hér segir fólk moijn sem hæ og bæ..mjög undarlegt að land sem ekki er stærra en Danmörk er getur verið með svona ótrúlega mismunandi mállýskur. (og við erum ekki að tala um eins og Akureyri vs. Reykjavík). Það er virkilega svona að fólk skilur nánast ekki hvort annað, mjög fyndið. Ég hef nú ekki lent í erfiðleikum fyrr en í dag þarsem ég var að tala við sjúkling sem ég skildi svei mér ekki og jú hún talaði víst dönsku.. varð að fá hjúkku til að túlka. Eg sem hélt að nú væri ég orðin fær í allan sjó í dönskunni. Það hlýtur nú samt að koma eins og allt annað, bara að nota pollýönnu taktana.
moijn moijn Fjóla

3 comments:

Anonymous said...

Hææj sæta . Geðveikt að þú ert byrjuð að blogga aftur . Sakna þín geðveikt sjáumst

Unknown said...

já þetta er nú meira hrognamálið hjá þessum vitleysingjum hérna...passaðu þig bara að þetta spilli ekki kaupmannahafnardönskunni...hún er víst aðeins útbreiddari en þetta oj-tungumál í suðrinu.

Annars kíkir maður fljótlega í kaffi enda ekki langt að fara...

Tryggvi, frændi og rípensi.

Anonymous said...

haha..ég get ekki annað en hlegið þegar ég heyri jóskuna..mér finnst eins og hver einasti karakter í grínþáttum í dk séu með jóskan hreim þótt leikarinn sé frá sjálandi, virðist bara vera fyndið að tala eins og jójó (sem mér finnst)

bestu kveðjur
Árni Bragi