Halló halló, já við Ilija bara að verða klár í slaginn, voðalega spennt yfir nýja hlutverkinu sem nálgast óðum. 37 vikur í gær, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.
Ég hef ekkert bloggað lengi þarsem að maður heldur alltaf að það lesi enginn bloggið manns en lítill fugl hvíslaði að mér að það væru víst fleiri en ég héldi og það er auðvitað rosalega gaman.
Ég er bara í fæðingarorlofi og nota daginn í smá verkefni eins og að þvo og strauja barnafötin og hreiðra um mig. Það koma svo smá fyrirvaraverkir öðru hvoru en við bíðum nú aðeins með fæðinguna, sagði við Sigvalda að fyrsti dagurinn sem kæmi til greina væri afmælisdagurinn hans 31. ágúst.
Annað í fréttum hér er að ég og Ilija trúlofuðum okkur þann 8.ágúst... jebb við fórum fínt út að borða í tilefni af að Ilija væri kominn heim frá Afganistan og að nú værum við sameinum á ný og viti menn hann fór niður á hné með demantshring huff... hormónaflæðið náttúrulega yfirgnævandi hjá þessari ófrísku:)
en alla vega núna erum við bara á suðurjótlandi, Ilija vinnur á fullu á deildinni minni og ég er komin í algjört mömmumode.. búin að gleyma öllu um læknisfræðina.
Hér rignir og rignir og geitungarnir alltof of ákafir í að koma inn til mín arrg...
11 comments:
Hæhæ æðislegt blogg hjá þér ...... Get ekki beðið eftir að koma til þín í heimsókn . Sakna þín .... Erlarun-
Hæ Fjóla mín. Loksins koma fleiri myndir frá þér. þú lítur vel út og það styttist í að við komum í heimsókn til þín . Fsrðu vel með þig . Biðjum að heilsa Ilija . Söknum ykkar mikið . Mamma
TIL HAMINGJU með trúlofunina bæði tvö! Frábærar fréttir :) Æðislegt að sjá bloggið þitt og myndirnar, þú ert nú aldeilis flott, stórglæsileg. Hafðu það gott næstu vikurnar, knús, Berglind
Til hamingju með trúlofunina! Þú tekur þig ekkert smá vel út og mér heyrist að þið séuð bara orðin tilbúin fyrir komu litla/u. Hafiði það ótrúlega gott.
Kv.
Sylvía frænka
hæ sæta mín
Þú lítur ljómandi vel út :) Við bíðum spennt í Aflakórnum núna þegar það styttist í litlu frænku ... eða frænda :)
Knús Halldóra
Ó hvað þú ert falleg! Sakna þín svo mikið. Farðu vel með þig elsku vinkona. Skrilljón knús og kossar!
LUW
Þorbjörg
Hæ
Mikið líturðu vel út beibí!
kveðja.
Íris
Til hamingju með trúlofunina og mikið svakalega ertu flott!! Takk fyrir að kíkja á vefsíðuna hennar Ellu Birnu. Hlakka til að sjá myndir af nýja frænda/frænku. Gangi þér obboslega vel með fæðinguna.
Kveðja frá Madison
Siggi Grétar, Sara Lynn og Ella Birna
Ég veit alveg afhverju geitungarnir vilja komast inn til þín...það er vegna þess að þú ert svo SÆT með kúluna þína.
Ást yfir á meginlandið.
Edda
Hæ Fjóla, Flott blogg að venju og líka mjög svo skemmtilegt að sjá myndirnar. Farin að hlakka ansi mikið til að koma og sjá ykkur og "lillu" enda ekki mjög langt í það. Bestu kveðjur Sigvaldi
Hæ Fjóla mín var frétta af síðuni þinni, ég var aðláta hana vita að það væri fæddur strákur hjá Guðmundi 5 sept höllum heilsast vel í Swiss vona að þér gangi vel,bíð eftir sms frá mömmu þinni bless Karlotta á Sauðárkróki
Post a Comment