7 Nov 2008

Móðurhlutverkið


Það er mjög undarlegt að vera orðin mamma einhvers en mér finnst þetta nú bara ganga vel og kom allt mjög náttúrulega. Það er samt fyndið hvernig allir hafa mismunandi skoðun á hvernig maður á að gera hlutina. En ég og Ilija erum nú skynsöm svo við förum bara okkar eigin leið. Litla Emma Lovísa stækkar og dafnar og brosir og hjalar meira og meira á hverjum degi. Við erum nú ekki í vandræðum með að láta daginn líða.
Samt erum við nú komnar í tvær mæðrahópa sem byrja í næstu viku, það verður spennandi.

Er búin að vera dugleg að setja inn myndir og skrifa í dagbókina hennar Emmu á www.barnanet.is/emmalovisaban og gleymi alveg mínu eigin bloggi.
Kannski er það í hnotskurn að maður verður að passa að gleyma ekki sjálfum sér þegar maður fær lítið barn. Reyni það en það er bara ekki margt annað sem kemst í huga minn í augnablikinu og ég elska það

2 comments:

Dóra said...

Hún er yndislega fríð þessi stelpa :)

Anna Magga said...

Innilega til hamingju með litla sólargeislann þinn kæra frænka. Hún er yndislega falleg eins og hún á auðvitað kyn til :-)

Kveðja frá Sölvabakka
Anna Magga og fjölskylda