jæja nú erum við farnar að finna útúr hversdagsleikanum við mæðgur. Njótum hvers dags saman og kynnumst betur. Mér finnst að Emma sé farin að brosa til mín og hún stækkar og stækkar..
Við fengum yndislega heimsókn um helgina frá íslensku fjölskyldunni.. amman og afinn og móðursystkinin voru hér í langa helgi og þau fóru á miðvikudaginn aftur og er sárt saknað. Maður verður óskaplega meir í öllu hormónaflæðinu og það hefur aldrei verið erfiðara að kveðja fjölskylduna. Ég sé hvort ég næ að setja inn myndir á www.barnanet.is af helginni. Við tókum auðvitað fullt af myndum.
annars gengur bara vel við ætlum til Koben um helgina í fertugsafmæli systur hans Ilija, sjáum hvort það gangi ekki bara vel með Emmu litlu.
Knús til allra Fjóla
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Sælar mæðgur.
Yndislegt að sjá frá ykkur bæði bloggið og myndirnar. Og mínar bestu hamingjuóskir fylgja hér með. Það er ekki frítt við að það sé svipur með Emmu Lovísu og Kristínu Erlu frænku hennar á Sölvabakka, mér sýndist það strax þegar ég sá myndirnar hjá Gunnu ömmu. Bestu kveðjur frá Boggu í Ömmuhúsi
Hæ, og bestu kveðjur til Iljia og innilegar hamingjuóskir frá mér.
Ég sá að þaðkom út eins og ég hefði alveg gleymt honum. Ykkar Bogga.
Post a Comment