30 Sept 2008

2 vikna Emma Lovísa



2 vikur hafa liðið ótrúlega hratt. Emma Lovísa orðin 2 vikna og hver dagur er ný upplifun með henni. Svei mér ef hún hefur ekki bara stækkað svolítið. Við erum líka búin að fara í fyrsta ferðalagið hennar, til Kaupmannahafnar um helgina og gekk bara ótrúlega vel. Hún sefur svo vel í bílstólnum frá ömmu og afa á Íslandi. Nú bíðum við eftir að þau og Sigvaldi og Erla komi og heimsæki okkur hérna í Rodekro. Við erum nú orðnar aleinar heima þarsem Ilija fékk bara 2 vikur í fæðingarorlof til að byrja með. Fær meira seinna þegar Emma Lovísa er orðin eldri. Hún er jú svolítil mömmustelpa ennþá þarsem ég stýri brjóstagjöfinni :)
Nú er ég líka búin að gera smá síðu á www.barnanet.is/emmalovisaban, leyniorðið er bara landið sem við búum í skrifað á ensku. Ef þið eigið í vandræðum með að koma inn á síðuna sendið mér bara mail þá redda ég þessu.

1 comment:

Pablo said...

So so very happy for you both!
What a lovely baby!!
Ciao, Pablo