Nú er prinsessan orðin 1 dags gömul og farin að heimta brjóst og opnar augun svolítið meira, fyndið að maður getur breyst á einum degi. Við nýju foreldrar gerum okkar besta og lærum eitthvað nýtt með hverri mínútunni. Hér eru nokkrar myndir frá deginum í dag.
Lífið er yndislegt
25 comments:
Hæ fallega fjölskylda.....
Innilega til hamingju með krúsindúlluna...hún er alveg æðisleg...og ekkert smábarn sko..eiginlega tilbúin á sjóinn með afa Jóni.
Gangi ykkur vel elsku dúllurnar mínar..
Bestu kveðjur frá okkur í Völvufellinu...kv
Guðný frænka
wow, very special, i like it.
wow, very special, i like it.
Takk fyrir yndislegar myndir. Ég sit hér með systkinum þinum og pabba og við horfum aftur og aftur á myndirnar af litlu prinsessunni. Hún er yndisleg!! Getum ekki beðið eftir að koma út og fá að knúsa hana. Kveðja Amma og fjölskylda :-)
Til hamingju aftur. Hún er ótrúlega sæt:)
Hún er bara yndisleg, Ég alveg tárast yfir svona krílum. Móðurhjartað er svo meyrt.
Ást til ykkar þriggja
Edda
Hún er algjört æði... og þið líka.
Gangi ykkur vel!
ó jeminn. táraflóð. þið eruð svo falleg. og hún svo yndislega mannaleg og lítur út fyrir að vera mjög tilbúin að takast á við lífið utan mömmumalla :)
knús og kram - elvadögg
Óóó hún er yndisleg! Þvílík fegurðardís! Innilega innilega til hamingju með hana! Mig klæjar alveg í puttana að panta mér far til Danmerkur NÚNA og fá að knúsa ykkur!
LUW
Þorbjörg og co
elsku vinir innilega til hamingju með þessa yndislegu, fallegu og hárprúðu stúlku :D hún er alveg hreint of mikil krúsulína bara bjútífúl. ohhh hvað það er mikil synd að þið séuð í danaveldinu og maður geti ekki knúsað ykkur fljótlega hehe það er óskandi að maður sjái foreldra og dóttur :) áður en hún verður margra mánaða. farið vel með ykkur og njótið ykkar í nýju og spennandi hlutverki elsku fjóla og ilja, endalaus ást og knús héðan bára, kalli & börnin.
Hej, aftur til hamingju litla stúlkan ykkar er yndisleg. Gangi ykkur vel og bestu kveðjur elsku fjölskylda
Ingibörg
Elsku Fjólan mín
Við Frostskælingarnir óskum ykkur Ilija hjartanlega til hamingju með þessa yndislegu stúlku og óskum henni alls hins besta í framtíðinni. Ég er ekki frá því að hún sé svolítið lík Tótlu "móðursystur sinni" svona við fyrstu sýn:-) Gangi ykkur allt í haginn í uppeldinu og mikið hlakka ég til að fá að sjá hana þegar hún kemur til Íslands.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Ingibjörg
Innilegustu hamingjuóskir elsku Fjóla og Ilja með þessa gullfallegu princhipessu! Hún er stórkostlega falleg :D Ég vona að það gangi allt vel hjá ykkur.
*Knús*
Stefa og fjölskylda
Úff hvað hún er fín, og næstum því með sömu mál og ég þegar ég fæddist!! Stór og myndarleg eins og hennar er von og vísa. Sýnist hún líkjast pabba sínum ansi mikið en á augnumgjörðinni er greinilega Fjólu að sjá. Þið eruð ótrúlega falleg fjölskylda og ég vona að allt gangi sem allra best. Sendi ást og kossa frá Fróni.
Hulda Á.
Elsku Fjóla og Ilija. Til hamingju með dótturina. Hún er rosalega falleg.. Hafið það sem best:)
Kveðja úr hlíðunum,
Hilda og co
Elsku Fjóla og Ilija
Til hamingju með yndislega litla stelpu.
Þúsund kossar og knús
Halldóra
Elsku Fjóla og Ilija. Innilegar hamingjuóskir með fallegu stúlkuna ykkar. Gangi ykkur vel.
Kveðja, Svala og Finnur Breki
Jiminn hvað hún er falleg og fín!
Hugsa sér að hún sé stærri en Dagbjört Lóa er núna. Þú ert algjör ofurmamma elsku Fjóla mín. Innilega til hamingju með þetta undur.
Gangi ykkur vel með allt sem er framundan næstu daga. Knús og ást til ykkar þriggja frá okkur á Austurbrún xxx
Hæ elsku Fjóla mín.
Við óskum ykkur nýtrúlofaða parinu innilega til hamingju með dótturina
hún er yndisleg,mér finnst eins og
henni svipi til föðurættar þinnar
allavega er þessi stærð af börnum ekki óþekkt í þeirri ætt.
gangi ykkur vel, það verður gaman að fylgjast með ykkur.
bestu kveðjur frá okkur öllum í Yrsufellinu, Sigrún frænka.
Æ hvað hún er nú mikið krútt :)
Innilega til hamingju með dömuna og gangi ykkur vel með framhaldið.
Kv. Sigfríð
Til hamingju elsku vinir. Hún er ótrúlega falleg og fullkomin! Þú ert algjör hetja, Fjóla mín :)
Heiða
Fullkomin!
kveðja
Íris.
Hæ litla fjölskylda.
Þetta er náttúrulega bara toppurinn á tilverunni að eignast litla prinsessu, sú er svakalega falleg og líka svo pattaraleg.
1000 hamingjuóskir til ykkar.
kv. kristjana (systir Þorra).
Hæ fallega fjölskylda :)
Hún verður bara fallegri með hverjum degi. Get ekki beðið eftir að koma til ykkar. kv Erla systir
Hæ elsku fjölskylda Innilega til hamingju með prinsessuna hún er alveg yndisleg.Gangi ykkur rosalega vel Knús frá okkur Sóley Sæunn frænka.
Post a Comment