17 Sept 2008

Dagur 3

Halló öllsömul vinir og vandamenn. Þúsind þakkir fyrir fallegar kveðjur hérna á blogginu, það er alveg yndislegt að fá og yljar hjartarætur að vita að það eru svona margir sem hugsa fallega til okkar á okkar fyrstu skrefum sem ný fjölskylda.
Engar áhyggjur við komum nú fljótt til Íslands og sýnum stelpuna, ætli amma skelli þá ekki bara í köku og bjóði í kaffi :)
Er ekki sniðugt að hafa tölvuna svona með á spítalanum og getað kíkt á mail og bloggað þó ég verði nú að viðurkenna að það hefur ekki mikill tími verið notaður í það.
Við höfum það fínt, nú ætla ég bara að fara að búa til eigin heimasíðu fyrir dótturina (með leyniorði, sem vinir og vandamenn fá að sjálfsögðu) til að komast hjá commentum frá fólki sem ég þekki ekki :)
En til ykkar allra sem við þekkjum takk aftur fyrir fallegar hugsanir
knús frá okkur þremur

5 comments:

Anonymous said...

Innilegar hamingjuóskir með prinsessuna, mikið rosalega er hún stór og sæt :) Gangi ykkur vel með dúlluna og vertu dugleg að setja myndir á netið ;) Hvet þig eindregið til að hanna vefsíðu fyrir skvísuna! Hlakka til að sjá ykkur á Fróni. Kær kveðja, Berglind frænka

Anonymous said...

Ég er að kafna að bíða eftir fleiri myndum! MYNDIR! ;) LUW Þorbjörg

P.s Ég er ekkert smá ánægð með að þú skulir vera með tölvuna á spítalanum og að maður geti séð fréttir af ykkur án þess að vera að trufla ykkur með endalausum símhringingum þegar þið eruð að hvíla ykkur ;)

Anonymous said...

Innilega til hamingju með prinsessuna, hún er alveg yndisleg.
Það er mjög gaman að fylgjast með ykkur. Gangi ykkur allt í haginn.
Bestu kveðjur, Gunna frænka í Garðabænum

Anonymous said...

Hæ litla frænka
Mér finnst þú sæt (og mér líka segir Ingibjörg). Mig langar svo til þess að hitta þig (og mig líka segir Ingibjörg). Þegar þú átt afmæli ætla ég að gefa þér afmælisgjöf. Vonandi get ég passaði þig bráðum. Þegar þú ert orðin stór verðum við vinkonur.
Bless Tinna Ýr

Anonymous said...

Sæl Fjóla mín og fjölskylda.
Hjartanlegar hamingjuóskir með litlu-stóru fallegu prinsessuna ykkar. Hlakka til að fá að sjá fleiri myndir af henni. Gangi ykkur vel.
Kv.Vala dóttir Karlottu.