3 Mar 2007

Danskir hryðjuverkamenn,fyrrverandi prinsessa og lasarus

Já það er ekki gott ástandið í Kaupmannahöfn í dag og síðustu daga...
Aktivisterne eins og þeir kalla þá, krakkana frá ungdómshúsinu hér á Norrebro. Eins og eg sagði fyrr og þið hafið eflaust séð í fréttunum er hverfið mitt hérna í Koben Norre"bronx" í upplausn. Í nótt var önnur nóttin af ofbeldi á móti lögreglu, uppreisn og íkveikjum núna aðallega á Sankt hans torv sem er uppáhaldstorgið mitt hér í koben, við hliðina á skólanum mínum og ekki langt frá þar sem ég bý. Þar kveiktu þeir bílum saklausra íbúa hverfisins osfrv.. hvað er eiginlega að þessum krökkum, hvar fengu þau uppeldi, hefur engin kennt þeim að bera virðingu fyrir öðrum og fyrir lögum og reglum þessa lands. Kastandi múrsteinum að lögreglunni sem hefur staðið sig ótrúlega vel í öllum þessum látum. Rúm 400 manns handtekið og örugglega fleiri á leiðinni. Ég er alveg miður mín yfir þessu og miður mín yfir að það situr fólk í sjónvarpinu og segir að þetta sé á ábyrgð borgarstjórn fyrir ekki að gefa ungdomskrökkunum annað hús, já gefa!! borgarstjórn fann annað hús þeir þurftu bara að borga fyrir það eins og við hin en nei nei ÉG VIL ÉG VIL, já það er margt sem ég vil fá en fæ ekki og ég veit að ég fæ það ekki frekar við ofbeldi.. hvað er þetta annað en hryðjuverk, þeir hóta að brenna Kaupmannahöfn ef við GEFUM þeim ekki hús.. Ungir DANSKIR hryðjuverkamenn og ekkert annað sem eru að eyðilegga hverfið okkar hérna og kasta ábyrgðinni á borgarstjórn, ekki sé ég borgarstjóra brenna bíla saklaust fólks úti á götu, við búum í landi þarsem maður má mótmæla að vild og rökræða til að fá sinn vilja en ég hélt að við vissum betur hér en að nota ofbeldi.

Að öðru þá missir Danmörk líka prinsessu í dag, já prinsessa Alexandra giftist ,,venjulegum" dönskum manni í dag og verður greifynja í staðinn. Brúðkaupið byrjar eftir 15 mín og vonandi segja þau já bæði tvö og verða hamingjusöm í langan tíma, alla vega lengri tíma en Alexandra endist með prins Jóakim.

Og af mér, er ég sárlasin hér heima ligg í rúminu með höfuðverk og enga rödd, hósta eins og ég veit ekki hvað og það lekur úr augum og nefi svo það er kannski best að ég fari og fái mér heitt te.
hóst hóst Fjóla lasarus

3 comments:

Anonymous said...

Farðu varlega Fjóla mín vertu bara heima og láttu þér batna.
Kveðja Pabbi

lynghaga familían said...

Já það er mikið að gerast í Köben. Þú ert góður fréttavefur...spurning að láta fréttastofurnar hér vita ;-)

Ertu ekki á leiðinni til Íslands...

kv. Halldóra

Anonymous said...

Ég er einmitt búin að vera að æfa mig í spænskunni með að lesa fréttir um þessi uppþot í Köben. Þið komist á forsíður hér....

Guð hvað ég er sammála öllu sem þú segir.
Farðu vel með þig Fjóla mín.

Knús, Beta