jæja langt síðan ég hef bloggað síðast... hef ekki alveg verið í stuði síðustu vikuna en núna er ég komin aftur til bloggheimsins. Var reyndar á Íslandi síðustu viku vegna fráfalls í fjölskyldunni minni, voðalega erfitt en gott að fá tækifæri til að segja bless við ömmu Fjólu, ég vil ekki skrifa meira um það hér, mér finnst það ekki við hæfi en vil bara segja takk við alla sem ég hitti á Íslandi.
Vorið að koma hér í Kaupmannahöfn, ég tók sumarjakkann fram og pakkaði vetrarfrakkanum langt inn í skáp.. það mætti nú samt alveg vera heitara (týpiskt að krefjast alls handleggsins þegar vorið býður fram litlafingur). En með vorinu nálgast prófin jú óneitanlega líka... ég er búin snemma í vor bara í lok april sem er nátturulega mjög gott.
Í gær heimsótti ég svo hann Bjarka frænda minn, lokins!!! enda alveg komin tími á það :) gaman að sjá hvernig hann býr og ég varð alveg ástfangin af litla Bono, karltýpunni af hundinum hennar Charlotte (Elisabeth Taylor í sex and the city) jeminn ekkert smá sætur..
Já árvökul Fjóla þarf nú að fara að drífa sig í skólann
I må have en god dag :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment