1 Mar 2007

Danmörk í dag!

Já Danmörk í dag er spennandi.. ég hefdi átt ad taka myndavél med mér í skólann klukkan átta í morgun. Ég hjóladi í fimmtudagsró af stad en þad lá eitthvad í loftinu og jú það voru tvær þyrlur sem svifu um.. ein var frá lögreglunni og ein frá nýju fréttastöðinni tv2 news (www.tv2news) og þegar ég kom nær Norrebro runddel fattaði ég hvað var í gangi.. Lögreglan var að tæma hið svokallaða ,,ungdomshuset".. Hóp ungra sem hafa haft setur í þessu húsi í mörg ár en húsið var svo selt fyrir nokkrum árum og það hefur ekki gengið að fá unglingana út. Þessi hópur unglinga er svolítið sérstakur hópur þið vitið pönkarableikt hár, rifnar sokkabuxur og já kannski smá gamall norðurkjallarasviður..
En hvað um það ég hjólaði í gegnum kaosið kl.8 lögreglan hafði stoppað alla umferð (þó ekki hjólaumferð), 50 lögreglumenn í fullum útbúnaði, þyrlur og stórir lögreglubílar.
Þetta var nú allt rólegt og ég hjólaði bara áfram í skólann en á heimleiðinni var eins og allt hefði bara verið sprengt upp, fullt af ruslagámum sem hinir ungu höfðu kveikt í, 3 komnir á Ríkisspitalann með höfuðáverka (ég var svo í skólanum með eðalstórslysaliðið frá Ríkisspitalanum sem kveið fyrir kvöldinu því það yrði örugglega mikið að gera ).. Fullt af fólki á Norrebro runddel og ég bý hérna í miðju fréttana :) hefði getað tekið góðar myndir í morgun en það er ekki það fyrsta sem maður hugsar að maður þurfi á að halda á leið í skólann kl.8 fimmtudagsmorgun.
En lögreglan býst við mómælum í kvöld með miklum látum svo to be continued, .þið heyrið nú örugglega um þetta allt í fréttunum í kvöld
knus fréttaFjóla

1 comment:

Anonymous said...

Hæ hæ Fjóla , ég er komin með nýja síðu www.blog.central.is/94_modelz
viltu skrifa í gestó
kv. Erla