22 Feb 2007

Litlu andarungarnir....

Í morgun var náttúrulega allt fullt af snjó og ég ákvað að setja hjólið í kjallarann og labba í skólann, venjulega tekur það aðeins um 30 mín. að labba þetta en í dag löbbuðu ALLIR! eða næstum allir það voru örfáir ,,hardcore" danir sem hjóluðu og auðvitað alltaf einhverjir sem keyra þrátt fyrir að lögreglan hefði varað við því.. en þarna vorum við hundruðir kaupmannahafnarbúa á röltinu í snjónum á leið til vinnu eða skóla.. Það minnti mig á litlu andarungarna sem labba allir í röð já svona vorum við í morgun og sumir labba hægar en aðrir svo að maður varð að taka frá úr á sköflunum ið hliðina á þessari mjóu göngulínu sem varð mokuð..... Alveg fyndið!
En talandi um litlu andarungarna þá er hún litla systir mín orðin táningur í dag já 13 ára í dag.. TIL LYKKE ERLA RUN, og fyrir mér verður hún jú alltaf litli unginn í fjölskyldunni. Ótrúlegt að 13 ár séu liðið frá því að hún fæddist en tíminn líður hratt.. Njóttu dagsins Erla mín.. pakkinn er á leiðinni í póstinum :)

3 comments:

Anonymous said...

hæ hæ takk. Jamm mér hlakkar til að sjá hvað ég fæ frá þér hehe. Sjáumst vonandi sem fyrst .
Lov Yah Erla

lynghaga familían said...

Knús til þín frá mér :o)

Kv. Halldóra

lynghaga familían said...

og já var að setja inn öskudagsmyndir af stelpunum ;-)