Já eftir mildan vetur hér í Kaupmannahöfn skall stormurinn á í morgun... PUHA! ekkert smá líka, ég fékk alveg áfall í morgun þegar ég vaknaði og það var bara íslenskur snjóstormur úti og ég átti að mæta í skólann eftir 20 mín.. fór í vetrargallann og hjólaði (mjög hægt) í skólann, maður er nú svei mér orðin eins hinn brattasti dani :)
En það hefur verið snjóstormur núna í allan dag og virðist ekki vera að hætta.. hjólin eru núna nánast horfin í snjó hehe.. ætli maður labbi bara í skólann á morgun?? ég sem var nánast komin í hálfgert vorskap með þessu góða veðri sem hefur verið undanfarið en ætli ég bíði ekki með að skella mér í sandalana (enda ekki langt síðan ég sprangaði um á sandölum í Tanzaníu) fór þess í stað í scarpa gönguskónna mína í morgun og hugsaði mikið til þess að moldin sem situr föst á þeim er frá Kilimanjaro fjallinu góða hmm.. góðar minningar..
kuldaknús frá snjóstorminum læt ykkur vita hvort ég snjói bara inni hérna :)
No comments:
Post a Comment