Eg fór á tónleika í Loppen, Kristaníu í gærkvöldið.. Pétur hennar Önnu Kristínar var að spila þar eða Pétur Ben eins og hann er kannski frekar þekktur sem. FRÁBÆRIR TÓNLEIKAR!!!
Ég fór með Gunnu Húnfjörð (já Blönduósliðið stendur saman á íslendingasamkomum) og við vissum nú ekki við hverju var að búast, hversu margir myndu vera þar osv. Ég vissi nú að platan hans Péturs væri mjög góð og finnst voða gaman að hlusta á hana á mp3 spilaranum mínum þegar ég hjóla í skólann á morgnana.. (já ég er örugglega ein af fáum sem ennþá notar mp3 í stað ipod..). Við komum með þeim fyrstu kl. 9 og flestir virtust vera íslendingar en þó leyndust nokkrir danir inni á milli. kl. hálftíu var svo allt fullt út að dyrum örugglega 200 manns og maður þurfti að hafa sig allan við til að sjá almennilega þegar tónleikarnir byrjuðu. Upphitunarhljómsveitin var rosalega góð svona tríó hljómsveit Wilhelm heitir hún og á örugglega eftir að gera góða hluti í framtíðinni (keypti demo plötuna þeirra á tónleikunum 20 kr vel varið).. og svo steig Pétur á svið.. þvílíkur hæfileikamaður að geta haldið svona góðri stemningu fyrir okkur öll aleinn á sviðinu. Rokkað á tímabili en hann fór einnig yfir á mildu tónana og tileinkaði Önnu Kristínu og Ásu Diljá hverju sínu laginu. Undir lokin tók Pétur svo Billie Jean með miklum tilþrifum já á gítar... alveg magnað!
Meira get ég víst ekki sagt en frábær listamaður þarna á ferð og við nutum hverjar mínútu..
Takk Pétur fyrir góða skemmtun.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
sammála sammála sammála
Þetta var frábært kvöld og skemmtileg upplifun. Góð tónlist og skemmtileg sviðsframkoma!
En það er allt Fjólu að þakka að ég fór á þessa frábæru tónleika, hún dró mig með þrátt fyrir hálsbólgu og skítakulda!
Takk Fjóla mín!
Post a Comment