11 Feb 2007

Jeg er så glad for min cykel og drama queen frá Danmörku




Já nýja hjólið mitt er alveg frábært og ég synd danska lagið.. jeg er sa glad for min cykel þegar ég hjóla á fleygiferð á því hér í Kaupmannahöfn. Eins og sum ykkar vita var hjólinu mínu stolið meðan ég var í Afríku og ég varð að fara út og kaupa mér nýtt.. á endanum varð Batavus flying D fyrir valinu alveg fínt og rosalega gott með áföstum díóðuljósum og bastkörfu.. tvennt mjög mikilvægt í Köben..


Annars er það að frétta frá kóngsins Köben að í gær völdu danir fulltrúa sinn til Eurovision 2007, fyrir valinu var Drama Queen sungin af manni í bleikum kjól og með stóran fjaðraðan hatt. Minnti svolítið á Moulin Rouge í París bara án brjósta svo já Danir senda dragdrottningu á eurovision í ár, er ísland komið með lag?


Góðan sunnudag knús Fjóla

2 comments:

Anonymous said...

Hæ Fjóla! Mamma þín og pabbi geta verið hreikin af þér stelpa (veit líka að þau eru það), þú stendur þig frábærlega vel. Ég er búin að setja þig í favorites hjá mér og ætla að kíkja við hjá þér öðru hvoru :-) Hafið það sem allra allra best!! Bestu kveðjur, Sigurlaug Ragnars.

lynghaga familían said...

Jeg er så glad for DIN cykel
DU kommer hurtigt langt omkring
og det fordi på en cykel
går det let som ingenting

lalalala...
Ég og Tinna hlustum oft á þetta lag og syngjum þá hátt með og núna framvegis hugsum við til þín á fína hjólinu þegar við hlustum.

Knús og kossar til þín og hlökkum til að sjá þig sem fyrst.

p.s Förum að ákv. skype spjall :-)