19 Feb 2007

Fastelavn.. bolludagur/öskudagur



Boller op og boller ned


Boller i min mave


hvis jeg ingen boller får


laver jeg ballade!!




Já í gær var danska fastelavn sem þeir kalla það... hef þó aldrei fattað hvernig danir af sett tvo af íslensku dögunum saman, þe. Bolludag (er það ekki?) og öskudaginn sem er á miðvikudaginn og hvert fór sprengjudagur í öllum þessum látum. En hvað um það þá sungu börn þetta lag í gær og ég fór í bakaríið og keypti rjómabollur og lille Lise undanrennukakómjólk handa mér og Ilija mmm.. hvað þær voru góðar. Verð þó að viðurkenna að ég sakna fiskibollana hennar mömmu í dag, það er ekki alvöru bolludagur án fiskibollana hennar mömmu.


Svo sakna ég öskudagsins, kannski ætti maður að halda gamaldags grímuball handa vinunum. Annars var ég í vinnunni í gær eftir rjómabolluna mína og er á leiðinni í ræktinni.


Ég og Ilija erum komin í æfingarstuð, fékk hann með mér í fitness. dk og nú æfum við á fullu hlaupum og boxum.. já já nú má Hillary swank vara sig því million dollar baby 2 er á leiðinni haha(aka auðvitað ég ) eða kannski ekki..


Að lokum bolla bolla bolla bolla til ykkar allra...




4 comments:

Anonymous said...

Þær líta vel út bollurnar ykkar ha.En fiskibollurnar mínar bíða eftir ykkur.Fjóla mín það er alltaf gaman að sjá myndir sem þú setur inn á síðuna mig langar að sjá fleiri. Bless mamma

Anonymous said...

Sammála síðasta ræðumanni, væri gaman að sjá fleiri myndir, jafnvel af ykkur skötuhjúunum og nánasta umhverfi...

Á morgun verður dóttir mín klædd í öskudagsbúning í fyrsta sinn. Það er nú bara heimakokkaður búningur að mestu, en sætur engu að síður. Stuð fyrir mömmuna, meira en fyrir barnið, hún er ekki alveg eins spennt og ég...

Anonymous said...

point taken.. nú er bara ad fara i gang med myndashow...

Anonymous said...

Gaman gaman að sjá myndir! Fékk fiðring í maga við að sjá Parísarferð, brosti hringinn við að sjá hvað þú ert alltaf sæt og fín og svo meiriháttar vatnsflóð í munn við að sjá girnilegar rjómabollur.

Sorglegt framtaksleysi á mínum bæ, engar bollur og enginn öskudagsbúningur:(