12 Apr 2007

Gleðilega páska

Gleðilega páska öll sömul!
ég átti mína fyrstu páska í Kaupmannahöfn og það var bara ljómandi gott, fór í íslenskt lamb hjá Bjarka frænda sem var rosalega gott og íslenskt, beint af grillinu takk fyrir það!
Var líka boðin í steinasteik á páskadag hjá henni Gunnu svo manni leiddist nú bara ekki neitt, en auðvitað alltaf svolítið skritið að vera á öðrum stað en vanalega á hátíðistíma. En þó voru páskarnir nú mest litaðir að próflestri og eins eru dagarnir núna mjög próflestrarlegir... og það er kannski ástæðan fyrir tómlegu bloggi þessa dagana :)
Sólin skín í Koben um þessar mundir og lofað enn betra veðri um helgina þar er eitthvað svo gott við vorið þegar maður er glaður yfir hverjum sólargeisla er það ekki?
Jæja bókin bíður víst og les sig ekki af sjálfum sér
sólarkveðja úr koben

No comments: