
Gleðilegt sumar kæru vinir, hér er komið svolítið sumar, sólin skín og hanskarnir eru komnir niður í skúffu, eða var það kannski aðeins of snemmt? Held reyndar nýja treflinum frá ömmu þangað til það verður 20 stiga á hverjum degi. Takk mamma fyrir sumargjöf (og Halldóra grunar að þú ættir hlut að máli)
Ég sit í miðjum próflestri var í prófi í morgun, veit ekki hvað það er með þessi munnlegu próf maður verður sko stressaður á annan hátt, að labba inn í herbergi og draga eina eða tvær spurningar hmm.. en bráðum er þetta búið. Búin með augnlækningar sem gengu vel og svo húð og kyn í morgun og svo er háls, nef og eyrna á miðvikudaginn........ lagðist bara upp í sófa eftir próf í dag og er að komast upp úr honum núna.. horfði á topmodel 6 og vaskaði upp.. er Jade ekki algjör xxx hehe........ ég er alveg búin að ákveða hver eigi að vinna (ekki segja þeir sem vita)
En nú er víst komið að alvöru aftur.. bókin komin á lesbrettið mitt (já margra ára háskólanám krefst ergonomiskra réttra hluta til að koma í veg fyrir vöðvabólgu).
adios for now nú er bara að hrista kroppinn og setjast aftur niður á þennan yndislega skrifborðsstól......sólin skín inn um gluggann
No comments:
Post a Comment