já nú er ég búin með 11.önn af þessu blessaða námi, one to go!! Svolítið skrítið að hugsa tilbaka á allt sem maður hefur upplifað á þessum já eiginlega 6 árum sem ég hef verið hér..... Kaupmannahöfn er yndisleg, sérstaklega þegar maður er búin að sitja inni og lesa í langan tíma, sólin skín og maður er í fríi... Tími fyrir allt, tími til að fara í búðina og skoða allt sem maður vill, tími til að hitta vinina, tími til að liggja eins og skata upp í sófa og horfa á óþarfasjónvarp, tími til að fara í ræktina og sitja endalaust lengi í gufunni eftir gott átak og umfram allt tími til að blogga :)
Það er pínu eins og það sé júnímánuður prófin búin og sólin skín, sokkabuxunum er skipt út fyrir leggins og tærnar fá langþráð vor og vind...... já er ekki lífið yndislegt.
Í gær fórum við svo í Dyrebakken og löbbuðum lengi í sólina (já og rigningardropunum sem komu en gleymdust fljótt).. í dag er Ilija í vinnunni og ég er á leið til mömmu hans að búa til pitu, króatískan sérrétt.. spennandi, ég læt vita hvernig gengur.......
skilaboð dagsins : njótið lífsins!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ elsku Fjólan mín.....gott að þú ert búin með lestrartörnina í bili.....njóttu sólarinnar og frísins sem best....heyrumst 11 mai...og sjáumst....
Bæ gull
Guðný frænka
Til hamingju með afmælið Fjóla mín. Hlökkum til að sjá þig fljótlega í hlíðunum :-)
Kv.Hilda & co.
Post a Comment