Loksins föttuðu danir hversu gott skyrið er! Irma bara með skyr í kæliskápnum alla daga, reyndar víst búnir að selja það í nokkurn tíma heyri ég en langaði bara til að hrósa þeim, yummie skyr.. en annars eru danir með annan góðan hlut hér sem heitir koldskál og henni má mikið hrósa hvenær ætli íslendingar fari að selja hana í sínum hillum, koldskal er svona hálfgerð þunn mjólk með sítrónubragði, voða holl eins og skyr og svo setur maður kex úti eða kammerjunker.. koldskalin á svo að kæla sveitta dani á heitum sumardögum og er þess vegna bara fáanleg á vorin og fram til hausts..já kannski maður getur líkt henni við íslensku lóuna vorið er komið þegar koldskál er komin í búðirnar og núna er hún komin í búðirnar og sólin skín ahhhh...... það er lofað sól og 20 stiga hita um helgina, kannski best að byrgja sig upp af kaldri koldskál í hitanum..
ps.. eru þið búin að taka eftir að í dag er föstudagurinn 13..... farið varlega
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment